Það er afskaplega lítið að frétta af okkur skötuhjúum hérna á norðurlandinu góða.. ég er alltaf að bíða eftir að skrif andinn komi yfir mig svo ég geti klárað þessa blessuðu ritgerð.. en hann er ekki kominn enn.. hann hlýtur bara að vera á leiðinni!
Annars héldum við skemmtilegt matarboð heima hjá kötu um daginn.. ég, jói, kata, himmi, gummi, kolla, kiddi rauði, birgir og pálína.. þríréttað og alles.. og maturinn var náttlega bara geðveikur.. áður en við fórum í eftirréttinn haldiði að við höfum ekki bara skellt okkur í lazer tag í þorvalsdalsskógi.. það var crazy veður á leiðinni og klukkan var ellefu um kvöld en belív mí þetta var geðveikt gaman!! maður náttlega gekk bara í barndóm og var að skjóta mann og annan og skríða í snjónum og fela sig og ég veit ekki hvað!.. þegar við komum heim eftir þetta voru allir svo búnir á því að við snarlega hættum að drekka og fórum bara fljótlega að sofa.. klárlega hlutur sem ég á eftir að gera aftur
... fórum svo daginn eftir í afrískan mat á hótelinu með tengdó og hann var ótrúlega góður.. kíktum svo í spil heim til svönu áður skriðið var upp í..
við fórum reyndar út um helgina.. byrjuðum á því að kíkja á lindu og finn en ég fór svo með svönu og huldu vinkonu hennar.. sem á btw fullt af siberian husky sem eru bara flottir hundar og sem mig bara langar að eiga!
..
íbúðin sem við búum í var sett á sölu um daginn.. þannig að við þurfum víst eitthvað að fara að hugsa okkur til hreyfings.. okkur líður mjög vel hérna á akureyri svo ætlum við verðum ekki hérna eitthvað áfram
en haldið þið að hún birna vinkona (sveinbjörns fyrrum skólastjóra á dalvík) hafi ekki átt litla skvísu seint í fyrradag.. ótrúlega sæt lítil dúlla... maður náttlega fær alveg verk þegar maður sér svona lítil 
Hafið það gott þarna úti
G.I Darma